Forsíða   |   Hótel   |   Aðstaða   |   Útivist   |   Hestar   |   Heklusetur   |   Lærdómssetur   |   Fjallaland   |    Sagan
Hótel Veitingahús Heklusetur Fjallaland Lærdómssetrið
 


 

   
English  Deutsch

LEIRUBAKKI

FRÉTTIR

Sagan

VERÐ

Myndbönd

Myndasöfn

Kort

STÖRF Í BOÐI

DOWNLOAD
BROCHURE IN:
DANISH
ENGLISH
GERMAN

Fréttir

1.2.2012 14:44:19

Páskatilboð á Leirubakka

Opið alla páskadagana

 

Hótel Leirubakki verður með páskatilboð á skírdag og föstudaginn langa. Gisting í 2ja manna herbergi í eina nótt og 3ja rétta kvöldverður með lambasteik eða bleikju í aðalrétt, verður á kr. 13.900.- á mann. Aðra daga um páskana verður þetta tilboð einnig í boði fyrir litla hópa, 6 manns eða fleiri. Sjáið nánar matseðilinn sem þetta tilboð er byggt á...............


Meira/more/mehr >>  

 

18.1.2012 12:02:04

Spurningakeppninni á Facebook lokið

 

Úrslit í spurningakeppni Leirubakka á Facebook í desember fóru þannig að aðeins einn aðili svaraði öllum 5 spurningunum og voru öll svörin rétt hjá viðkomandi. Það var Guðbjörg K. Ólafsdóttir sem vann gjafabréf nr. 2 á Leirubakka, sem er gisting í eina nótt fyrir 2, í herbergi með baði og morgunverði. Gjafabréfið gildir í 1 ár. Guðbjörg er beðin um að hafa samband í síma 4878700 eða tölvupóstinn bookings@leirubakki.is til að fá gjafabréfið sent.


Meira/more/mehr >>  

 

9.1.2012 16:08:29

Myndasýning frá Leirubakka og nágrenni

 

Hótel Leirubakki og Heklusetrið minna á að á staðnum er góð aðstaða til að taka á móti hvers kyns hópum, stórum og smáum. Vaxandi fjöldi hópa sækir Leirubakka heim síðla vetrar og á vorin; óvissuferðir, vorferðir, fyrirtækjaferðir og hvataferðir hvers konar. Boðið er upp á gistingu á góðu hóteli ásamt..............


Meira/more/mehr >>  

 

16.12.2011 14:20:34

Gjafabréf við öll tækifæri

 

Gjafabréf með gistingu á Hótel Leirubakka og/eða kvöldverði í Heklusetrinu er úrvals góð gjöf fyrir þá sem „eiga allt“. Gjafabréf gilda í 1 ár frá útgáfudegi, nema annað sé tekið fram.


Meira/more/mehr >>  

 

1.12.2011 15:14:36

Spurningaleikur á Facebook síðu Leirubakka

 

Núna í desember fer fram léttur spurningaleikur á Facebook síðu Hótel Leirubakka. Í hverri viku, á fimmtudegi eða föstudegi mun birtast létt spurning um eitthvað tengt Leirubakka eða umhverfinu þar. Öll svörin verður hægt að finna hér á heimasíðu Leirubakka. Svara skal spurningunni í kommenti Facebooksíðunni, eða með status þar. Allir sem taka þátt og svara spurningunum rétt, fara í pott sem verður dregið úr í janúar. Vinningshafi fær gjafabréf nr. 2, í vinning. Fyrsta spurningin birtist á morgun, föstudag. Hér til hægri er krækja á Facebook síðuna.


Meira/more/mehr >>  

 

16.11.2011 11:02:00

Gjafabréf á Hótel Leirubakka

Við bjóðum upp á gjafapakka með allt að 25% afslætti

 

Gjafabréf með gistingu á Hótel Leirubakka og/eða kvöldverði í Heklusetrinu er góð tækifærisgjöf við fjölmörg tilefni, ekki síst fyrir þá sem „eiga allt“. Einnig sérsmíðum við gjafabréf svo þau henti hverjum og einum í samráði við þig. Aðgangur að Heklusýningu fylgir öllum gjafabréfum. Það jafnast ekkert á við að sitja í heitu pottunum og horfa á stjörnubjartan himininn og norðurljós á fallegum vetrarkvöldum á Leirubakka. Til þess að panta gjafabréf, hafið samband í síma 487 8700 eða sendið tölvupóst á bookings@leirubakki.is


Meira/more/mehr >>  

 

22.10.2011 11:53:44

Fyrirtækja-, óvissu- og skemmtiferðir!

Gerum tilboð fyrir hvers kyns hópa, svo sem fyrirtækjaferðir, skemmtiferðir, óvissuferðir, árshátíðir.

 

Á Hótel Leirubakka og í Heklusetrinu á Leirubakka er frábær aðstaða til að taka á móti stórum og smáum hópum, hvort heldur sem er í skemmtiferðir eða vinnuferðir. Góð fundaaðstaða í nokkrum sölum, nýtt píanó til að nota við kóraæfingar og veitingahús í........


Meira/more/mehr >>  

 

23.9.2011 15:42:37

Veiðivatnaveisla – 2011

Í Heklusetrinu á Leirubakka - Húsið opnar kl. 19:00, borðhald hefst kl. 20:00

 

Efnt verður til sérstaks "Veiðivatnakvölds" á Leirubakka hinn 8. október næstkomandi. Þar verður boðið upp á dýrindis 5 rétta matseðil sem byggir á silungi úr Veiðivötnum og lambi af Landmannaafrétti. Veiðivatnakvöldið er haldið í samstarfi við Veiðifélagið í Veiðivötnum, og verður eitt og annað gert til skemmtunar. Meðal annars munu verða veitt verðlaun í fyrsta skipti fyrir stærsta fiskinn veiddan á stöng í Veiðivötnum sumarið 2011, en verðlaunin eru bæði farandgripur og eignarbikar.


Meira/more/mehr >>  

 

8.9.2011 14:06:20

Veiðivatnakvöld á Leirubakka 8.október!

 

Efnt verður til sérstaks "Veiðivatnakvölds" á Leirubakka hinn 8. október næstkomandi. Þar verður boðið upp á dýrindis 5 rétta matseðil sem byggir á silungi úr Veiðivötnum og lambi af Landmannaafrétti. Það er yfirmatreiðslumaður Hótels Leirubakka og Heklusetursins, Rögnvaldur Guðbrandsson, sem sér um að laða fram það besta úr þessu frábæra hráefni. Veiðivatnakvöldið er haldið................


Meira/more/mehr >>  

 

>> Allar fréttir


 

  

Kynntu þér gjafabréfin á Leirubakka 

 

HÓTEL LEIRUBAKKI
 

 


  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

© Leirubakki | leirubakki@leirubakki.is | bookings@leirubakki.is
Sími/Tel. +354 487 8700 | GSM/Mobile: +354 893 5046| Fax: +354 487 6692


Vefsíðugerð: Tónaflóð