|
Fjallaland
Fjallaland er ný og glæsileg frístundahúsabyggð í landi Leirubakka í Landsveit, nú nýverið lauk skipulagsferlinu og eru því lóðirnar tilbúnar í sölu. Aðeins eru um 100 km að Fjallalandi frá Reykjavík og er malbikað alla leið. Landið er einstaklega fallegt og býður upp á ótakmarkaða möguleika til hvers konar útivistar og náttúruskoðunar.
Sumarhúsalóðirnar eru í kjarri vöxnu hrauni. Að sunnan og austan afmarkast það af hinni fallegu Ytri-Rangá sem hlykkjast í gegnum hraunið, að vestan liggur Fjallaland að Réttarnesi, sem er stórt skógræktarsvæði í eigu Ásahrepps og Rangárþings ytra og að norðan er svo jörðin Leirubakki, þar sem rekin verður fjölþætt þjónustustarfsemi fyrir hina nýju byggð.
Skipulag Fjallalands miðar allt að því að sumarhúsabyggðin falli sem best að landinu. Þar eiga allir íbúar að geta verið í næði og búið að sínu, en um leið verður séð fyrir öllum nútíma þægindum, svo sem góðum vegasamgöngum, heitu og köldu vatni og vefsambandi. Síðast en ekki síst verður svo hægt að sækja hvers kyns þjónustu heim að staðnum á Leirubakka. Þar er til dæmis rekið hótel og veitingahús, tjaldstæði og útleiga á sölum til samkomuhalds.

Þá verður þar boðið upp á leikjanámskeið, hestaferðir og margvíslega aðra afþreyingu fyrir íbúa Fjallalands. Vorið 2007 opnaði á Leirubakka, Heklusetrið, þar er starfrækt safn og sýning um eldfjallið Heklu, sögu hennar og náttúru. Stefnt er að því að í sameiningu myndi Leirubakki og Fjallaland frístundabyggð sem verður í algjörum sérflokki hér á landi.
Náttúran á þessum slóðum er einstök. Í Fjallalandi er staðviðrasamt og oft mjög hlýtt á sumrin, enda er orðið mjög langt til sjávar. Umhverfið er stórbrotið og fjallasýnin glæsileg: Hekla gnæfir yfir og vel sést til Búrfells, Bjólfells, Tindfjalla og Tindfjallajökuls. Mikið fuglalíf er í hrauninu og ekki spillir Ytri-Rangá umhverfinu; í senn ein fallegasta á landsins og ein aflahæsta laxveiðiáin.

Þá er örstutt frá Fjallalandi og Leirubakka að mörgum kunnum náttúruperlum svo sem Landmannalaugum, Hrafntinnuskeri, Veiðivötnum, Landmannahelli, skóginum í Skarfanesi og þannig mætti lengi telja. Örstutt er svo í gönguferðir að Réttarnesi, hinum fornu, grjóthlöðnu réttum Landsveitar, sem hlaðnar voru árið 1680. Hvert sem litið er blasir falleg náttúra við og sagan er við hvert fótmál.
Leirubakki er gömul jörð og höfuðból að fornu og nýju. Þar stóð kirkja um meira en sex alda skeið, helguð Pétri postula. Staðarins er getið í bæði Sturlungu og Byskupasögum og meðal eigenda Leirubakka fyrr á öldum voru Snorri Sturluson sem þar stundaði meðal annars nautaeldi, og Ólöf ríka.
Deiliskipulag hinnar nýju byggðar í Fjallalandi er nú tilbúið og fyrstu lóðirnar komnar í sölu. Hægt er að bjóða mjög góð kjör í samvinnu við lánastofnanir ef óskað er. Að auki getum við útvegað mjög góð hús frá Svíþjóð, aðlöguð að íslenskum aðstæðum. Nánari upplýsingar verða veittar í síma 893-5046 og tölvupóst má senda á leirubakki@leirubakki.is
Hægt er að skoða kort af svæðinu með því að smella hér . (ath að myndin er á pdf formi og nauðsynlegt er að nota "zoom in & zoom out")
Fleiri myndir frá Fjallalandi er að finna hér.
|