Forsíða   |   Hótel   |   Aðstaða   |   Útivist   |   Hestar   |   Heklusetur   |   Lærdómssetur   |   Fjallaland   |    Sagan
   


Þú ert hér > Leirubakki > Lærdómssetur

English  Deutsch

Af spjöldum sögunnar

Þjóðsögur af Leirubakkadraugnum

Álfaþúfa

Sögu- og menningarganga 2007

Sögu- og menningarganga 2006

Landréttir í Réttarnesi

Tenglar

 

 

Ráðstefna á Leirubakka 5. - 7. júní, 2009 um Þormóð Torfason (Thormod Torfæus)

Mannlíf í nýju landi


Minnisvarði var reistur um dr. Guðna Jónsson prófessor á Leirubakka vorið 2007 við upphaf ráðstefnu Sagnfræðingafélagsins og Félags þjóðfræðinga. Guðni Jónsson, sem var einn mikilvirkasti og áhrifamesti sagnfræðingur og útgefandi íslenskra fræða á 20. öldinni, ólst upp á Leirubakka. Hann sagði svo frá sjálfur, að þar hefði verið menningarheimili og hann kynnst Eddunum og Íslendingasögunum og fleiri ritum og það lagt grunninn að ævistarfinu. Minnisvarðann gerði Helgi Gíslason myndhöggvari.

Landnám, mannlíf og samfélag í nýju landi

Á Leirubakka í Landsveit hefur verið  stofnað fræðasetur — Lærdómssetrið á Leirubakka — sem beiti sér fyrir rannsóknum á því hvernig Ísland byggðist í öndverðu og hvernig mannlíf og þjóðfélag mótuðust í

 
Frá fundi í fræðastjórn Lærdómssetursins á Leirubakka:
Gísli Sigurðsson formaður fyrir miðju.

þeirri deiglu fólks af ólíkum uppruna sem hér kom saman og tókst á við nýjar aðstæður. Ísland er síðasta land Evrópu sem byggðist og óvenju miklar heimildir eru til um landnámið, fyrstu búsetu manna í landinu og síðar um það hvernig þjóðfélagið mótaðist í öndverðu.

Ætlunin er að efna til fjölþættrar starfsemi til að vinna að þessum málefnum, til dæmis með rannsóknum, málþingum, ráðstefnum, sýningum, byggingum, útgáfu og ferðalögum. Áherslan er tvíþætt, annars vegar á að öll fræðivinna verði vönduð og uppfylli akademískar kröfur, og hins vegar að efnið verði gert aðgengilegt skólafólki, ferðamönnum og öllum almenningi, bæði íslenskum og erlendum.

Á Leirubakka er þegar rekið Heklusetur sem — auk þess að reka sýningu um eldfjallið Heklu — vinnur að fjölbreytilegu fræða- og menningarstarfi, ekki hvað síst ef það tengist Rangárþingi og er ætlunin að áherslan á sameiginlegan menningararf á Íslandi og í nágrannalöndunum, tengist því starfi beint og óbeint.


Afkomendur dr. Guðna Jónssonar við minnisvarðann eftir afhjúpun hans í júní 2007.

Til að gera starfið markvisst er meðal annars ætlunin að koma upp aðstöðu fyrir fræðimenn á Leirubakka, sem þar geti unnið tímabundið að verkefnum er tengjast efninu. Þá er ætlunin að byggja stafkirkju á bænum, tilgátubyggingu, sem verði eins konar táknmynd starfsins og vettvangur til að sýna kirkjulist. Ætlunin er einnig að koma upp sýningu, sem á aðgengilegan hátt leiði gesti um Íslandssöguna frá landnámi og fram eftir öldum.


Frá ráðstefnu sagnfræðinga og þjóðfræðinga á Leirubakka vorið 2007.

Leitað verður til fjölmargra aðila um samstarf á þessum vettvangi, svo sem til stjórnvalda og háskóla á Íslandi, Noregi og á Bretlandseyjum, auk margvíslegra stofnana og fyrirtækja. Hinn fræðilegi hluti starfseminnar verður ákvarðaður af stjórn fræðasetursins á Leirubakka, sem verður saman sett af fræðimönnum á ýmsum fræðasviðum.

Fræðastjórn Lærdómssetursins

Fræðastjórn Lærdómssetursins á Leirubakka er skipuð eftirtölum aðilum:

  • Gísli Sigurðsson, rannsóknaprófessor við Árnastofnun, formaður.
  • Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir MA forstöðumaður Hekluseturs, Leirubakka.
  • Örnólfur Thorsson, MA, ritari forseta Íslands.
  • Guðrún Larsen, fræðimaður á Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.
  • Guðrún Nordal, prófessor við Háskóla Íslands.
  • Orri Vésteinsson, lektor við Háskóla Íslands.
  • Terry Gunnell, dósent við Háskóla Íslands.
  • Árni Hjartarson, jarðfræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum.
  • Ágústa Edwald, fornleifafræðingur við Fornleifastofnun Íslands.
  • Torgrim Titlestad, prófessor, Háskólanum í Stavanger.
  • Andrew Dugmore,  prófessor, University of Edinburgh.


Kynning á verkefninu í Noregi:
Þorgrímur Gestsson, rithöfundur.

Dagleg umsjón:
Anders Hansen.

 



 Til baka

© Leirubakki | leirubakki@leirubakki.is | bookings@leirubakki.is
Sími/Tel. +354 487 8700 | GSM/Mobile: +354 893 5046| Fax: +354 487 6692