|
Útivist

Leirubakki er fyrir löngu þekktur og vinsæll staður meðal útivistarfólks af ýmsum toga; göngumanna, hestamanna, náttúruskoðara, hjólreiðamanna, fjallgöngumanna.... enda er af nógu að taka bæði heima á Leirubakka og næsta nágrenni og á hinum fjölmörgu áhugaverðu stöðum í nágrenninu. Á Leirubakka eru skemmtilegar gönguleiðir rétt við bæinn, til dæmis niður með Vatnagarðslæk og Ytri-Rangá, sem rennur í sveig umhverfis land Leirubakka á nærri þriggja km kafla. Þá er fallegt, kjarri vaxið hraun á stórum hluta landareignarinnar, og víða á landareigninni má sjá minjar um búsetu fólks í Leirubakkahverfinu á liðnum öldum. Heima á hlaði er gamli kirkjugarðurinn og hlaðnar tóftir hlöðu, fjárhúsa og hesthúss og skammt frá má sjá margar gamlar rústir bæjarhúsa og útihúsa sem minna á söguna og forna búskaparhætti. Í næsta nágrenni Leirubakka eru einnig fjölmargir áhugaverðir staðir. Þar má til dæmis nefna hinar fornu réttir Landmanna, Landréttir í Réttarnesi, þar sem öldum saman voru haldnar einhverjar mestu skemmtanir Rangæinga daginn fyrir og á réttardaginn á hverju hausti. Þá er ekki langt að fara í skóginn í Lambhaga og Skarfanesi, sem er ótrúleg náttúruperla. Skammt undan eru Þjófafossar og Tröllkonuhlaup, Galtalækjarskógur og Rangárbotnar. Þá er heldur ekki langt að aka í Landmannalaugar, Áfangagil, Hrafntinnusker, Landmannahelli og Veiðivötn, svo fátt eitt sé talið. Ekki má gleyma Heklu, einu frægasta eldfjalli veraldar, en margir ganga á tind hennar á hverju ári. Þá er Leirubakki í þjóðbraut þeirra sem fara norður Sprengisand, aka um Fjallabaksleið eða ganga Laugaveginn og áætlunarbílar koma við á Leirubakka tvisvar á dag á leið til og frá Landmannalaugum. 
Heima á Leirubakka er leitast við að greiða götu þeirra sem vilja kynna sér nágrennið. Hér er hótel og veitingasala, tjaldstæði, svefnpokapláss, aðstaða fyrir hestamenn og hesta þeirra, útigrill, heitir pottar, - jafnvel sönghús fyrir þá, sem vilja vaka fram eftir við söng og gleðskap!
Mikið útsýni er frá Leirubakka. Þar gnæfir Hekla hæst, en litlu tignarlegra er Búrfell í norðri og Bjólfell, Tindfjöll og fleiri fjöll sjást vel í suðaustri og Skarðsfjall í vestri. Allir eru velkomnir að Leirubakka og starfsfólk staðarins leggur sig fram um að gera viðdvölina sem ánægjulegasta.
|