Forsíða   |   Hótel   |   Aðstaða   |   Útivist   |   Hestar   |   Heklusetur   |   Lærdómssetur   |   Fjallaland   |    Sagan
   


Þú ert hér > Leirubakki > Hótel Leirubakki

English  Deutsch

Gisting

Verð/Tilboð

Veitingar

Fyrirtækjaferðir

Ráðstefnur

Hekla “a la carte”

Hekla, Leirubakki, Landmannalaugar

Norðurljós

Brúðkaup

GJAFABRÉF

Hótel Leirubakki


Sumar í lofti

Hótel Leirubakki er nýtt hótel, sem byggir á áralangri hefð ferðaþjónustu á Leirubakka, en tugþúsundir manna koma á staðinn árlega. Við leggjum áherslu á góða og persónulega þjónustu og kappkostum að mæta kröfum hvers og eins.

Mjög falleg og hlýleg setustofa er í hótelinu og heitir pottar við húsvegginn, auk þess sem saunabað og stærri laug, Víkingalaugin, standa gestum til boða.

Veitingahúsið í sal Heklusetursins er í hæsta gæðaflokki og þar fer saman glæsilegur salur og frábært útsýni þar sem Hekla og Búrfell blasa við augum.

Mjög góð aðstaða er til funda- og ráðstefnuhalds og einnig hefur starfsfólk okkar mikla reynslu í að skipuleggja brúðkaupsveislur, óvissuferðir, hvataferðir, ættarmót og hvers kyns samkomur.

Leirubakki er í aðeins 100 km fjarlægð frá Reykjavík á góðum, malbikuðum vegi alla leið. Staðurinn er miðsvæðis á Suðurlandi og flestir sögustaðir og náttúruperlur  þessa landshluta eru í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá Leirubakka.

Hótel Leirubakki og Heklusetrið bjóða gesti velkomna allt árið.  Staðurinn er þekktur fyrir mikla náttúrufegurð og gott veður. Glæsilegt útsýni er til allra átta og fátt er betra en að njóta slökunar í heitum laugum staðarins hvort heldur er í miðnætursól á sumrin eða við skin norðurljósa og stjarna að vetrinum.

  • Nýtt hótel, nýr veitingastaður.
  • Áhrifamikil og fræðandi sýning um Heklu.
  • Þjónusta og veitingar í hæsta gæðaflokki.
  • Háhraða internettenging.
  • Skipuleggjum hvers kyns viðburði.
  • Vinsæll staður fyrir brúðkaup og brúðkaupsveislur.
  • Ein besta staðsetning á landinu.
  • Allir helstu ferðamannastaðir Suðurlands innan seilingar.
  • Hestaleiga og margvísleg afþreying í boði.
  • Lax og silungsveiði.
  • Tjaldstæði.
  • Verslun og bensínstöð.
  • Upplýsingagjöf til ferðamanna.
  • Aðstoðum við að finna afþreyingu svo sem góðar gönguleiðir, útsýnisflug, golf, fljótasiglingar og margt fleira.
  • Fjallasýn í miðnætursól.
  • Norðurljósadýrð á veturna.

 

 

 



Til baka

© Leirubakki | leirubakki@leirubakki.is | bookings@leirubakki.is
Sími/Tel. +354 487 8700 | GSM/Mobile: +354 893 5046| Fax: +354 487 6692